mánudagur, ágúst 29

eyru smeyru

Ég er að safna í nýtt eftirmeðferðarblogg. Gefst alltaf upp þegar ég byrja. En það gengur allt vel enn sem komið er. Við hjónin vinnum bæði í okkur sjálfum og reynum að láta okkur líða vel.

Það er aftur á móti sonurinn sem er ekki upp á sitt besta þessa dagana. Hann kom reyndar nýr maður til baka frá Íslandi og er búinn að vera algjör draumur í dós.. svona fyrir utan einstaka frekjuköst. Þess á milli kjaftar hann okkur í kaf. Vá hvað það er hægt að tala mikið..

Það sem angrar hann eru blessuð eyrun. Hann hefur jú ekki farið nema 5x í rör - eitthvað tolla þau nú illa í karlinum. Í sumarbyrjun var ljóst að rörið í vinstra eyranu var farið og eyrað fullt af vökva. Aftur á móti voru engin merki um eyrnabólgu svo það var ákveðið að "bíða og sjá til". Svo fór læknirinn í sumarfrí, síðan Úlfur og átti hann loksins tíma í dag í "4ra vikna" eftirlitið. Hann hefur í sumar rokið reglulega upp með hitatoppa sem síðan eru búnir daginn eftir og pillar mikið í eyrað samfara þessu. Um helgina tók steininn úr þegar barnið hreinlega stóð á öskrunum vegna eyrnaverkja og allir stílar í heiminum (eða þessir 3) virtust ekki breyta neinu. Skyndilega hætti svo verkurinn og við tókum því sem svo að nú hefði hljóðhimnan rofnað (aftur) en það gerði hún síðast fyrir ári síðan. Þetta var þvílík vanlíðan - ja hjá okkur öllum- að við sjáum frammá 6. rörin og nefholuhreinsanir á kvöldin um ókomna tíð.

Læknirinn "gladdi" mig hins vegar í dag með því að segja að himnan hefði ekki rofnað og að það væru engin merki um eyrnabólgu. Það er jú frábært en mér finnst ég samt hálf ráðalaus varðandi hvernig við eigum að takast á við áframhaldandi svefnleysi (hann sefur jú illa þar sem hann er með inneyrað fullt af drullu og er mættur uppí til okkar upp úr miðnætti þar sem hann snýst eins og þeytivinda alla nóttina og ekkert okkar hvílist) og verki sem barnið fær samhliða þessu VESENI! Djö er ég orðin leið á þessu eyrnastússi.

Einhver ráð til örvæntingafullra foreldra? Hvítlaukstrixið hefur víst ekkert að segja þegar engin er eyrnabólgan.

5 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Hmmm...getur læknirinn ekki losað drulluna út? Er búið að taka nefkirtlana? Árni Veigar fór í nefkirtlatöku og um leið var einhverri drullu sópað út úr eyranu. Hann hefur varla orðið veikur síðan.
En gott að þið stóru eruð í góðum málum ;)
kv Heiða Árna

AgnesVogler sagði...

En bíddu... hvað er að valda hita og sársauka ef hann er ekki með eyrnabólgu? Skil þetta ekki alveg...
Kann svo sem engin ráð en man að mér fannst rosa gott að fá hitapoka (svona rafmagns) til að leggja við eyrað þegar ég var eyrnabólgukríli.

Nafnlaus sagði...

Getur verið að þetta sé líka kannski orðið "vani" að vakna og koma.
Ég fékk ráð frá barnalækni með minn elsta sem alltaf kom upp í. Hann var reyndar eldri en Úlfurinn ykkar.
Hann mátti aldrei sofna í okkar rúmi, lesa f. hann á kvöldin í hans herbergi og kannski sitja þar smá stund og gefa honum smá öryggistilfinningu.
Þegar hann kom á nóttunum máttum við aldrei lofa honum að koma upp í, áttum að snúa honum við og fara aftur með hann í sitt rúm og dvelja þar frekar smá stund.

Tók smá tíma en virkaði mjög vel.

En ykkar líf er náttúrulega búið að vera ótrúlega erfitt síðustu mánuði, kannski spilar þetta allt saman.
Kannski ekki galið að leita ráða hjá góðum barnalækni.

En það er mjög erfitt að fá ekki nætursvefninn sinn, nótt eftir nótt.
Gangi ykkur vel elskurnar.
Kv. Hanna Bára

Nafnlaus sagði...

Koma bara og láta setja ísl. lækni setja rör í barnið.... þessir dönsku kunna greinilega ekki að gera þetta rétt! (Ísland... best í heimi!)
En annars fór Sól í bæði nefkirtlatöku og rör og hefur 1x síðan fengið krónískan gröft úr eyranu en hún varð ekkert lasin (fékk dropa við því að lokum og það kláraðist á viku eftir það). Rörin enn á sínum stað og eyrun hrein.

Sumir vilja meina að mjólkurvörur og sykur auki slímmyndun upp í eyrnagöngin og við tókum Sól af allri mjólk og gáfum henni acidofilus í duftformi 2x á dag í einhvern tíma, það virtist gera gott.

Kv, Steinrún

Nafnlaus sagði...

Æji elsku kallinn, þetta er bara ömurlegt fyrir ykkur öll!!! Ég sé að við höfum verið gríðarlega heppin með rörin hjá ST, þau eru enn á sínum stað og allt í góðu. Vonandi fær Úlfur bót meina sinna sem fyrst!