þriðjudagur, september 20

tékk númer eitt

er loksins afstaðið. Og mikið hriiiikalega er þetta búinn að vera langur dagur. Ekki af því að ég/við værum eitthvað stressuð. Nei. Þetta var bara einn af þeim dögum þar sem allt tekur óratíma. Fyrst hrundi tölvukerfið í blóðtökunni svo biðtíminn varð extra langur. Síðan seinkaði læknatímanum frá klukkan 10 til 12 og svo "gleymdu" hjúkkurnar að Guðjón beið alltaf eftir pamifosinu inni á biðstofu svo við vorum ekki komin aftur heim fyrr en klukkan 3 í dag og vorum farin að heiman um 9 í morgun.

Það eru svo sem engin sérstök tíðindi eftir daginn í dag - og til að hafa hlutina á hreinu þá viljum við EKKI að það séu nein sérstök tíðindi ;) Við erum sko nefnilega komin á þann stað þar sem engar fréttir eru góðar fréttir. Hins vegar spjölluðum við um hina ýmsu hluti eins og verki sem Guðjón er með í mjöðmum og öxl og úr varð að pantaður var tími fyrir hann í MRI skanna og röntgen hjá bæklunarlækni uppi á Rigs. Hann fær oft verki í mjaðmirnar þegar hann er búinn að vera mikið á stjákli eða æfa mikið en okkar tilfinning er meira sú að þeir tengist breyttri líkamsstöðu því kroppurinn hefur jú vissulega tekið breytingum eftir allt þetta halløj. Alla vega, þetta verður amk allt skoðað og kemur þá í ljós hvort þetta eru verkir sem tengjast beinum eða vöðvum og hægt að haga taka mið af því í uppbyggingunni.

Sumsé.. allt í gúddí hérna megin - og til að toppa það þá rakaði karlinn tutluna af efri vörinni í gær. Mótmælaaðgerðum hefur því verið aflýst og eintóm ást tekið við :)

9 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Vissulega eru engar fréttir góðar fréttir og eflaust er hægt að hjálpa skrokknum á Guðjóni við að laga þessa verki. Ég er afar hamingjusöm yfir fréttaleysinu og ástinni.
Elska ykkur Mamma

Nafnlaus sagði...

Kossar og knús.
kv. tengdó

Nafnlaus sagði...

Góðar fréttir. Vona að jógað skili Guðjóni kattliðugum áður en langt um líður. Hilsen til ykkar allra! Stína

Nafnlaus sagði...

Hellú!
Bara að kvitta fyrir mig og láta vita að ég er enn að lesa og fylgjast með, takk fyrir að skrifa og til hamingju með brotthvarf tutlunnar :)
Risa knús á ykkur fallega fjölskylda!!

Hrönn

Bína sagði...

Gott að heyra "engar fréttir" ;o)
Skelltu knúsi á kallana þína frá okkur... og þig líka ;o)

Doppa sagði...

Gott að heyra og alltaf gaman að fá nýtt blogg frá þér, kæra Harpa.
Og til hamingju að vera laus við tutluna - mikill áfangasigur þín megin! Kossar og knús

Nafnlaus sagði...

Það er gott að heyra elskurnar! Vonandi eru þessir verkir eitthvað sem er hægt að laga með þjálfun. En heldurðu ekki að þú eigir eftir að sakna mottunnar? ;o) Kossar og knús á ykkur öll þrjú! Tinna Hrönn

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra - takk fyrir að skrifa.
Held áfram að hugsa til ykkar á hverjum degi!

Nafnlaus sagði...

Samgleðst þér með mottuhvarfið. Takk fyrir "engar fréttir" og öll skrifin þín.
Kv. Gyða