sunnudagur, október 16

16. október.

Jæja. Það kom að því að ég lufsaðist til leiðbeinandans og átti dúndur gott spjall við hana. Hún var mjög skilningsrík varðandi hvað ég er hikandi og á erfitt með að komast í gang svo við ákváðum að ég myndi ekki skrifa undir "samninginn" fyrr en í desember. Í húmanísku deildinni í Kaupmannahafnarháskóla þarf maður sko að skrifa undir samning við leiðbeinanda um að verkefnið sem maður er að gera. Frá dagsetningu þessa samnings hefur maður svo sex mánuði til að ljúka verkinu. Og það er grínlaust full vinna að gera rannsókn og skrifa einhverja steypu uppúr henni á þeim tíma. Þess vegna ætlum við að þjófstarta rannsókninni aðeins en láta sem ég byrji ekki fyrr en í desember. Ég mun gera hluta af rannsókninni á Íslandi (Egilsstöðum) og tek nokkur viðtöl þar um jólin (áhugasamir viðmælendur mega gjarnan gefa sig fram í kommentakerfinu). Stutt spjall um endurvinnslu. voða gaman :)
Síðan mun ég taka viðtöl við vel valda íbúa í kaupmannahöfn og bera saman niðurstöður á hvorum stað fyrir sig m.t.t. viðhorfa, aðstæðna og svo framvegis. Já, ég er bara farin að hlakka svolítið til.

Kontról-heimsókn númer 2 er á þriðjudaginn. Ég er meðvituð um daginn langt fyrirfram og er með frekar stuttar neglur en þessar mundir. Guðjón hins vegar kveikti bara á perunni áðan: "bídduuu.. eru blóðprufurnar í næstu viku?" Honum fer svo vel fram að það hræðir mig. Finnst þetta næstum ganga of vel til að vera satt. Og er auðvitað viss um að "jinxa" hlutunum með því að minnast á það. Svona er maður nú galinn!
Hárið er líka með sterkt comeback og karlinn allur að massast upp. Þessar 2 vikur í vinnunni hafa gengið vel. Suma daga er hann auðvitað þreyttari en aðra en ég er hálf hissa hvað honum hefur fram við að hlusta á líkamann og hreinlega hvíla sig þegar hann er þreyttur. Batnandi mönnum...

Svo keyptum við nýtt hjól í gær. Áttum orðið bara stálhestinn prestfrúna sem er með lélegar gjarðir, níðþung og ekkert endalaust þægileg þegar lítill ormur er í baksætinu. Maður vill jú líka vera á tryggu tæki þegar barnið er með í för! Alla vega, við teljum okkur hafa fengið góðan díl og ætlum að sjá hvernig fyrstu vikurnar á nýja hjólinu (sem enn hefur ekki hlotið nafn) ganga. Ef við erum ánægð verður líklega bara splæst í annað. Uss... bruðlið!

11 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst verkefnið þitt mjög spennandi og fínt að drýgja tímann fram í desember. Það verða örugglega einhverjir tilbúnir að tala við þig hér á Egils - ef ekki geturðu rætt við tengdó gömlu sem hefur svo lengi haft áhuga á endurvinnslu.

Við erum óendanlega glöð yfir því hve Mr. Strong er orðinn strong og stæltur og orðinn líkur sjálfum sér. Trúum bara því að þetta gangi allt vel - en auðvitað tekur þessi biðtími á og nú er það bara þannig að engar fréttir eru góðar fréttir.

Til hamingju með nýja hjólið. Kysstu kallana frá okkur hér og við erum farin að telja niður dagana fram að jólum.

Ástarkveðjur,
tengdó

Nafnlaus sagði...

Bara 13 dagar í að ég komi og knúsi ykkur, jól hvað??? Na,na,na,na,bú,bú!
Ég er einmitt að vinna endurvinnsluverkefni í skólanum, þú mátt klárlega spjalla við mig sem: ekki flokkari - flokkari - aftur ekki flokkari sem grét yfir því að geta ekki flokkað í Rvk. - og vonandi verðandi flokkari í borg óttans.
Ánægð með hjólakaupin, Úlfurinn eflaust sáttur með kaggann eins og foreldrarnir.

Steinrún

Nafnlaus sagði...

Og, já PS:

Ég er næstum hætt að muna eftir að bróðurómyndin sé ekki bara fullfrískur, hann lítur fáránlega út.

Kv, SÓS

Nafnlaus sagði...

Endurvinnsla, til er ég í spjall. Flott að þú skulir vera að komast í gang - styð þig samt í að taka þinn tíma í þetta.
Gott að heyra að allt gengur vel ... fingur þó enn vandlega krossaðir.
Knús á ykkur.
Gyða

Nafnlaus sagði...

Ég er líka voða dugleg að flokka, með ótal dalla og poka í gangi.
og hlakka til jólanna eins og barn.ÉG trúi að blóðprufurnar verði eins og vonast er til. ÁSTAKV.MAMMA

Nafnlaus sagði...

Vá, það er farið að styttast ótrúlega mikið í jólin, ég er aaaalveg að fara að telja niður! :o) Frábært að heyra hvað allt er að komast í gang, bæði verkefni og vinna! Magnað -og eins gott að kunna að hlusta á líkamann! :) En ef þú vilt tala við venjulegt fólk sem flokkar þá er ég til og gæti jafnvel bent á mjög "grænt" fólk til að tala við! :)
Til hamingju með nýja fákinn og við sendum knús á línuna! Kv, Tinna.

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra frá ykkur og að allt er í góðum gír. Góðar hugsanir og óskir til ykkar alltaf, alla daga :) Knús til ykkar allra.
Kv. úr Grænukinninni

Nafnlaus sagði...

Mér líkar strax vel við leiðbeinandan þinn Harpa og enn betra er að þú sért orðin spennt. Ég hinsvegar sérhæfi mig ekki í endurvinnslu en dáist að þeim sem gera það og er alltaf að fara að taka næsta skrefið.. bráðum.
Hitti hjúin á Garðarsveginum um helgina og svei mér þá ef þau eru ekki orðin spennt yfir jólunum;)
Hlakka til að sjá ykkur og ekki síst dökka lokkaflóðið á Guðjóni eftir nokkrar vikur. Krossa fingur fyrir þriðjudeginum. Megi hann gefa ykkur áframhaldandi góðan bata.
Kv Stína frænka

Nafnlaus sagði...

Þetta P.S. komment átti auðvitað að vera að hann lítur fáránlega VEL út.... en hitt passar svo sem líka, hann hefur alltaf verið hálf fáránlegur greyið ;o)

Kv, SÓS

Nafnlaus sagði...

Gott að þú sérst farin að stað með,hálfnað er verk þá hafið er.

Ég er að flokka, er í tilraunaverkefni hér í Kópavogi.
kv. Hanna Bára

Nafnlaus sagði...

Ég er tilbúin til viðtals ef þú vilt. Ég veit líka um annan Egilsstaðabúa sem er jafnvel ennþá forfallnari endurvinnandi en ég. Sigfús Guttormsson nágaranna minn. veit að hann er alltaf tilbúinn að tjá sig um hvað sem er, jafnvel endurvinnslu :)
gangi ykkur vel á nýja hjólinu.
Knús Ragnheiður