miðvikudagur, október 19

18. október

Tékk nr 2 í dag. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu virðist karlinn bara búinn að ná sér í blóðinu. Rauðu blóðkornin, blóðflögurnar og det hele komið upp í eðlilegar tölur - svona eins og þær eru í mér og þér (þeas ef við værum karlmenn).

m-stuðullinn svokallaði sem er ein vísbendingin um að eitthvað sé ekki í lagi er mjög lár - eins og hann var í ágúst. Fólk getur mælst með þennan stuðul þó það hafi ekki sjúkdóminn svo dr. Peter hefur engar áhyggjur af því. Enda fleiri þættir notaðir til viðmiðunar en þetta er eitt af fáum atriðum sem okkur hefur verið sagt frá að sé notað til að mæla magn sjúkdómsins í blóðinu. Alla vega - engar fréttir = góðar fréttir.

Dr. Peter fór aðeins yfir röntenmyndina sem var tekin um daginn. Samkvæmt henni virðist samfallið á þessum 2 stöðum í bakinu meira en myndin frá í apríl sýnir. Það þýðir þó ekki að liðirnir hafi haldið áfram að falla saman eftir að meðferð hófst því þetta gæti allt eins verið "afleiðing" læknunar. Þeas að þegar liðirnir fóru að jafna sig eftir brotið hafi þeir þrýst meira saman. Hljómar hálf kjánalega en hvað veit maður svo sem.. Alla vega hafi dr. Peter engar áhyggjur - og þá höfum við ekki áhyggjur.

MRI skönnun fer svo fram í desember og viðtal við bæklunarlækni væntanlega í janúar. Svo við förum heim til Íslands og höldum okkar jól í rólegheitunum.

Og já varðandi mína rannsókn þá eru sko skilyrðin þannig: a) verður að búa á Egilsstöðum b) ég þarf ólíka aldursdreifingu svo ekki bara 30+ með 2 börn. TAKK TAKK TAKK!!!

8 athugasemdir:

AgnesVogler sagði...

Gott að fá meiri díteil hérna á blogginu.

Þú gætir auðvitað talað við pabba. Hann væri ábyggilega meira en til og hefur verið að endurvinna í mööörg ár.

Bína sagði...

Gott að heyra að allt er á réttri leið.
Kærar kveðjur héðan og koss á báðar kinnar ;o)

Nafnlaus sagði...

Góðar fréttir! Öllum skrefum í rétta átt ber að fagna og ég trúi að þið hafið gert eitthvað til að gleðja ykkur. Knús Stína

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra. Krossa puttana áfram meðan krítíski tíminn heldur áfram að styttast en er jafnframt sannfærð um að allt gegnur vel áfram. Þið eruð best :)
Knús og kveðjur
Snærún

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra um áhyggjuleysi Dr. Peters. Og ég panta viðtal um endurvinnslu. Á Kaffi Valný (rosa gott hvítvín þar). Ég er 30+ með 3 börn. Sleppur það ekki? Gæti líka fengið bróðir minn eða kærustuna hans til að hitta þig sem eru 30- og eiga ekkert barn til að vega upp á móti mér. En ég ætla að mæta.
Inga

Sverrir Páll Erlendsson sagði...

Góð tíðindi. Má því segja að afleiðingin sé aðallega lægri meðalhæð fjölskyldunnar - og þó: Ætli Úlfurinn hafi ekki náð að hækka hana :)
Gangi ykkur vel áfram og ævinlega.

Nafnlaus sagði...

Já það er gott að heyra að Dr. Peter hafi ekki áhyggjur, hlýtur að vita á gott.

Knús á ykkur frá Hönnu Báru og co.

Nafnlaus sagði...

:) :) :)
Knús Ragnheiður