þriðjudagur, nóvember 8

8. nóvember.

Ég fór á bókasafnið í heila 2 tíma í dag! Jæja, ætti ekki að gera lítið úr því þar sem þetta er í fyrsta skipti síðan í febrúar að ég sest inn á bókasafn. Ákvað að nýta tannlæknaferð nr 2 niður í bæ og læra smá í leiðinni. Tannlæknaferðin var ekki síður viðburðarík þar sem karlinn klóraði sér bara í hausnum yfir vanlíðan minni. Sagði að hluti af tannverknum stafaði af: a) of hörðum tannbursta b) ég gnísti tönnum. Hann sagði að það væri ekkert að bitinu og þrátt fyrir að höfuð- og tannkvalir mínar hafi fyrst byrjað eftir að hann krukkaði í kjaftinum á mér, var hann ekki tilbúinn að samþykkja að bitið væri skakkt eða eitthvað í þá veruna. En.. til að friða kerlinguna tók hann gömlu/nýju fyllinguna úr og skellti nýrri í. Og það passaði að þegar ég var búin að vera 2 tíma á bókasafninu og deyfingin runnin úr, að höfuð-tannpínu-verkurinn var aftur mættur á vaktina. Svo hér sit ég, dópuð af íbúfeni og paratabs og rökræði við sjálfa mig um gildi tannlækninga. Einhverra hluta vegna gengur illa að komast að niðurstöðu. Ég er ennþá að melta með mér hvort ég eigi að sofa með sokk í kjaftinum til að koma í veg fyrir skyndilegt og reyndar frekar ólíklegt tanngnístur.

Annars stefnum við hjónin að því að velja jólakortamyndina í kvöld. Það var óvenju gaman að standa í þessum myndatökum og loksins virkaði "proppsið" almennilega. Greinilega að verða nógu gamall til að skilja mikilvægi jólakortsins. Við stefnum jafnframt á góðar heimtur í jólakortunum í ár en þær hafa vægast sagt dalað síðustu ár (þið vitið hver þið eruð). Ég kenni Snjáldurskinnunni um en það er mín skoðun að það að setja "jólaknús" í statusinn sinn á facebook er EKKI það sama og að senda jólakort með persónulegum skilaboðum. kapísj?

Og eins og klárlega má sjá vaknar jólabarnið í mér með vaxandi skammdegi og hæfileikinn til tuðs með ótæpilegu verkjapillubruði. Góðar stundir.

6 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með bókasafnið - verra með tönnina. Mér skilst reyndar að þegar skipt sé um fyllingar geti maður verið "viðkvæmur" í nokkra daga á eftir - en kannski ekki með sára verki. Var tekin mynd?

Bíðum spennt eftir jólakortinu.

Kveðjur í bæinn,
tengdó

Nafnlaus sagði...

Í gamla daga setti fólk tóbak í veiku tönnina. það brást ekki, er manni sagt, verkurinn hvarf á augabragði. Ég hlakka til að fá jólakort frá ykkur í ár, he hem.Og ég er alveg sammála þér um það að kveðjur á feisbúkk eru hreint ekki það sama og kveðjur í jólakorti með fallegum frumburði.
knús Ragnheiður

Nafnlaus sagði...

Mín reynsla af tannviðgerðum er, að ef verkurinn er ekki horfinn eftir ca 2 daga er eitthvað að( lek fylling, særð taug o.s.frv.)
"tannagnistur:" bull shit
Til hamingju með bókasafnið og vaxandi þroska barnsins. Meira að segja mitt jólabarn er vaknað fyrir nokkru en það er venjulega mun seinna til en núna. mamma

Elin sagði...

Jólakortin eru sko tilbúin hér, hvert á að senda ykkar?

Nafnlaus sagði...

Ég bíð spennt eftir að fá nýjustu útgáfuna af jólakortinu. Jólin ekki farin að banka á dyrnar hér en gott að vita að jólabarnið er farið að láta á sér kræla í DK. Kv Stína

Nafnlaus sagði...

"Ash" segi ég bara uppá norska mátann yfir þessu tannbrasi.
Hins vegar verð ég að viðurkenna að ég man ekki hvenær ég sendi þér alvöru jólakort síðast eða fékk frá þér. Held ég hafi a.m.k. sent kort þegar við vorum báðar á austurlandinu þegar Úlfurinn var lítill ungi. Hef verið misdugleg við kortaskriftir en hef reynt að senda alltaf jólakveðju-email á vinalínuna. Er ekki alveg á nótunum með það hvað er orðið stutt í komandi jól og því ekki byrjuð að huga að jólakortagerðinni eða jólamyndatöku. Verð að fara að sparka í eigin rass svo slíkt komist í verk í tæka tíð.
Hafið það gott.
Kv. Jóhanna