Já það er komið haust og tískan í dag ber þess augljós merki. Til að mynda hefur horgemlingurinn Úlfur Stefán skartað grænni slykju á sér framanverðum í um 2 mánuði núna og vekur móður sína gjarnan á nóttunni með orðunum: "mama é'me ho". Nokkrum læknisheimsóknum síðar eru hafnar tilraunir með asmalyf (sem ég hef enga trú á) og skv eyrnalækninum flakkar þrýstingurinn á milli hægra og vinstra eyra milli heimsókna svo þau eru ekki "nógu slæm" til að hann fái sín 6. rör. Kannski bara eins gott því þau hrynja jafnóðum úr.
Nú og haustlægðin heldur áfram. Næstur í röðinni er húsfaðirinn sem með einum eða öðrum hætti hefur smitast af grænu tískunni. Í hans tilfelli eru hins vegar engir grænir strætóbílstjórar (hor sem lekur úr nös er kallað 'bussemænd' í Dk) heldur birtist fyrirbærið í ljótum hósta. Yfirumsjónarmaður heilsuveilla heimilismeðlima mun því innan stundar bruna með karlinn til læknis og fá úr skorið með þennan hósta. Húsfaðirin tekur kvefinu af áður óþekktri skynsemi og tilkynnti veikindi í vinnunni. Batnandi mönnum...
Af yfirumsjónarmanni er það að frétta að tannviðgerðir ullu henni meiri skaða en bata í síðastliðinni viku. Kom á daginn að það að láta skipta um gamla fyllingu er ekki góð skemmtun. Stanslaus tannpína, tannkul og höfuðkvalir fylgdu samfara nýju, RÁNdýru fyllingunni svo það hefur vægast sagt komið sé vel að hafa fjölbreytt verkjalyfjaapotek staðsett í íbúðinni.
Hér er því rífandi andskotans stuð!
9 athugasemdir:
Ljóta ástandið á ykkur - vona að úr rætist sem fyrst....
Svala
Batakveðjur á ykkur. Hang in there! ;o)
Æ, krúttin mín. Farið nú vel með ykkur elskurnar. Stórt faðmlag og koss!
kv. tengdó
Sjæse, það má ekki líta af ykkur í smá stund!
Vonandi batnar horgemlingunum, ég er öll að koma til eftir þetta danska-kvef. En hef meiri áhyggjur af Gugga.
Láttu svo kíkja á helv. fyllinguna ef þú skánar ekki. Það er ekki hægt að vera svona lengi og ekki eðlilegt!
Love,
Steinrún
Vonandi batnar þetta fljótlega elskurnar og allir komnir í rétta gírinn eftir nokkra daga. Love mamma
Oj. Man samt eftir því af tannlæknastofunni að fyllingaskipti og viðgerðir hafi orsakað svona verki og að það hafi þótt eðlilegt í allt að 10 daga frá "viðgerð"...
Eins gott að það voru haustlægðir en ekki lausthægðir ;)
þær koma stundum líka logi ;)
Veistu hvað Harpa. Ég held að allt batni þegar þið komið HEIM.
Knús Ragnheiður
Sendu inn athugasemd