mánudagur, nóvember 21

hósti og önnur ólykt

Og svo hefur það gerst sem búið var að vara okkur við: ótrúlega lífseigar pestir! Helgin núna var sennilega 3ja eða 4ða helgin í röð sem Guðjón er í "útgöngubanni" vegna hósta. Hann fékk sumsé kvef fyrir einhverjum vikum og hósta í kjölfarið sem hefur vægast sagt verið leiðinlegur. Nokkrum sinnum hefur hann "horfið" en komið jafnskjótt aftur og Guðjón hefur hætt sér í smá hreyfingu. Hann er heppinn að amma Sigga er ekki hérna til að skamma hann, sá fengi aldeilis að heyra það. En sumsé, núna er að verða kominn mánuður þar sem líkamsrækt hefur setið á hakanum vegna þessa og það hefur ýmis konar keðjuverkun í för með sér.. aðallega skapferðislega.

Hér styttist annars óðum í 4ra ára afmæli einkasonarins og er spennan gríðarleg. Enda eru líka jól handan við hornið og menn skilja ekki hvað snýr upp og niður í þessum málum. Menn eru líka mistilbúnir til að hlusta á móður sína útskýra þessa atburði og því fer sem fer. Líf hans snýst um CARS um þessar mundir og ekkert sem hann þráir heitar í afmælisgjöf en McQueen rafmagnsbíl. Ég spái að lífdagar þess bíl verði ekki margir (já bíllinn er í sigtinu) enda færnin til að fara með slíkt tryllitæki ef til vill ekki fullþróuð. Annað og ef til vill alvarlegra vandamál er snuddunotkun unga mannsins. Hana fæst hann ekki til að gefa upp á bátinn. Til stóð að fara fyrir 4ra ára afmælið og kaupa eitthvað fínt fyrir þær en því loforði virðist hann hafa steingleymt og þvertekur fyrir allar slíkar verslunarferðir. Góð ráð eru vel þegin í þessari baráttu :)

Sálartetrið er allt á uppleið ef frá er tekið pólitískt bakslag í kjölfar myndarinnar "inside job" sem við komum loksins í verk að horfa á. Ég held ég hafi endanlega misst alla von um að nokkuð muni breytast á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins. Fólk heldur áfram að flýja land og eftir nokkur ár verður fátt um fína drætti þegar kemur að góðu vinnuafli hjá iðnaðarmönnum og háskólamenntuðum einstaklingum. Ætli LSH eigi ekki bara eftir að vera rjúkandi brunarúst innan í þessu nýja "hátæknisjúkrahúsi" sem á að fara að byggja en mun ekki hafa efni á að ráða til sín starfsfólk eða veita þá þjónustu sem fólk þarf á að halda. þvílík endemis vitleysa!! "Ríka liðið" heldur áfram að fara í gjaldþrot á gömlum kennitölum og drekka kampavín í karabíska hafinu. fussum svei!

9 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Leiðinlegt ástand á heimilsfólkinu, vonandi fara allir að hressast. Snuddunotkun... jájá. Á okkar heimili fengu snuddurnar nýtt líf hjá jólasveinunum. Þeir tóku allar snuddurnar og ætluðu að gefa öðrum börnum sem þurftu meira á þeim að halda. Það alla vega svínvirkaði á dömurnar okkar :)
Bestu kveðjur á alla, með snuddu og án. Við hlökkum mikið til að hitta ykkur fljótlega!
Joðin & co

Nafnlaus sagði...

Ótrúlegt að það séu að verða fjögur ár frá því að Úlfurinn fæddist. Pakki fór í póst hér í dag...

Hvað snuddur varðar þá var Stefán Númi hvað þrautseigastur við þær en við byrjuðum á því að "fækka" þeim niður í eina - sem að lokum "gleymdist" á Lagarfelli 11 eitt kvöldið. Það kostaði talsvert táraflóð en svo varð það bara allt í lagi.

Vona að GBS fari að losna við þennan leiðinda hósta - hann má ekkert við svona aukaveikindum.

Ástarkveðjur til ykkar,
tengdó

Nafnlaus sagði...

McQueen ku vera mjög kúl og það er lykilatriðið fyrir 4ra ára gutta að sanka að sér Cars dóti. Hvað varðar snudduna, já einmitt... læt foreldra um að gefa góð ráð:)
Guðjón er líklega búin að reyna öll trixin í bókinni við hósta en ég mæli með engifer, sítrónu og hunangi. Nota það við öllu og tel mér trú um að það virki.
Já og Harpa hættu að horfa á svona myndir sem rugla með blóðþrýstinginn. Þú ættir frekar að ná þér í eitthvað fallegra að horfa á;)
Knús í hús! Stína

Bína sagði...

Ég heyrði af einni sem batt snudduna við einn skápinn inní eldhúsi hjá sér... þannig ef krakkinn vildi hafa snuðið varð hann að dúsa þar! Hehehehe við höfum nú ekki farið í svoleiðis aðferðir með okkar duddusjúklinga, en þau eru mismikið fyrir þetta. Við létum Bjart hætta cold turkey og hann bíður þess varla bætur.... Sé eiginlega eftir því í dag, hann var svo engan veginn tilbúinn. Sunna hætti sjálf einn daginn enda alveg sjálfstæð með eindæmum sú dama. Man reyndar eftir því að hún var tyggjósjúk á þessum tíma... það virtist bara vera nóg að hafa bara eitthvað í munninum, (getur prófað það, bjóða tyggjó þegar hann vill snuð, nema kannski fyrir svefninn). Og Dagný virðist ætla að hætta núna eftir að við svona fórum að nefna þetta við hana eftir 3 ára afmælið sem var fyrir stuttu. "þetta er bara fyrir lítil börn" og svoleiðis frasar eru búnir að vera mikið notaðir.. Við erum samt að tala um duddusýki á háu stigi hjá henni! Svo er bara að sjá hvernig Sindri tæklar þetta þegar kemur að honum ;o)
Þannig að ég myndi mæla með að reyna að láta þetta "deyja út"... aldrei bjóða honum snudduna og bíða þangað til hann sjálfur er svoldið tilbúinn... Fara svo í dótabúðina og borga með snuddunum. Það virkaði flott hjá okkur!
Vá þetta var langloka! punktur.
Gangi ykkur vel og batakveðjur á Guðjón ;o)

Logi Helgu sagði...

Sunna fór reyndar með sínar og keypti dót og borgaði með duddunum, þannig að hún var alveg tilbúin og tók meðvitaða ákvörðun um það.

Gætuð prófað að hengja duddurnar uppí loft og sagt honum að hann verði að stækka til að fá þær ;)

harpa sagði...

já ég sé fyrir mér mjög hamingjusaman 12-13 ára afmælisdag :)

Nafnlaus sagði...

Við höfum nú bara átt eitt snuddubarn og það var samið við hann rúmlega þriggja ára þegar Svíþjóðarferð var í vændum að hann myndi hætta með snudduna þegar við kæmum til Svíþjóðar. Ég hafði ekki mikla trú á að það myndi ganga þar sem hann var hundlasinn á leiðinni út en þegar við stigum inn í flugstöðina og fórum að tala um það að nú værum við komin til Svíþjóðar þá var það minn sem tók út úr sér snudduna og rétti mér með þeim orðum að nú værum við í Svíþjóð. Ég dauðvorkenndi lasna greyinu og hafði snudduna í úlpuvasanum allan tímann sem við vorum úti (hann lasinn megnið af tímanum) en allt kom fyrir ekki. Snuddutímabilið var yfirstaðið. Þess má þó geta að ýmsir aðrir kækir hafa látið á sér kræla síðan og eru viðloðandi enn þó barnið sé orðið 7 ára. Hvort það hefur e-ð með snuddusýki að gera á unga aldri skal ég ekki segja um. það má þá kannski tengja þetta komandi Íslandsferð ykkar. Gangi ykkur vel með allt og knúsið afmælisprinsinn vel frá okkur. Leifur er málið - við þekkjum það!
Kveðja Gyða

Nafnlaus sagði...

Vonandi losnar eiginmaðurinn við þetta kvefógeð sem fyrst svo hann geti testað McQueen með einkasyninum! Annars er McQeen orðinn fastagestur heima hjá mér þessa dagana...
Eru engin dýr í Zoo sem þiggja snuddur? Svona eins og í húsdýragarðinum í laugardal? :) Annars held ég að jólasveinana langi í fleiri duddur :)
Knús á línuna, Tinna.

Nafnlaus sagði...

kanski hægt að skipta á snuddu og einhverju í skóinn þ. e. einni í einu
ef skórinn fer í gluggann á annað borð