miðvikudagur, janúar 11

heima er best

Heima er best! Eins yndislegt og það var að vera á Íslandi yfir jólin er fátt sem toppar það að leggjast í eigið rúm að loknu ferðalagi. Sonur minn er reyndar ekki á sama máli. Hann vill sko ekki vera í København, ætlar bara heim til afa Stebba á Seyðisfjörð. Og mikið skil ég hann vel. Það er ólíkt meira frelsi fyrir 4ra ára barn að vera á Seyðisfirði en í Kaupmannahöfn. Svona fyrir utan að á Seyðisfirði má maður alla skapaða hluti og fær allt sem maður vill. Meira að segja þeyttan rjóma út á skyrið. Í København er ekki sami lúxus enda var manninum troðið beint í rútínu við heimkomuna. Matur á matmálstíma og í háttinn klukkan átta - eða svona næstum því. Er nema von að 4ra ára barnið sé óvenju brúnaþungt þessa dagana?

Eiginmaðurinn er orðinn býsna brattur eftir lugnabólguvitleysuna í desember og heldur í takmarkið að byrja í 50% vinnu í þessari viku. Á morgun eigum við tíma hjá bæklunarlækni á Rigshospitalet og þá á að fara yfir stöðuna á hryggnum. Hversu illa hryggjarliðirnir eru farnir og hvernig sé best að haga endurhæfingu. Dr. Peter hefur minnst á einhverjar "sementsprautur" við okkur sem mögulega meðferð. Þá yrði hreinlega sprautað steypu inn í þá liði sem eru hvað verst farnir/holastir að innan - eins og ég skildi það amk. Auðvitað er best að sleppa við öll inngrip en við förum með opnum huga enda er markmiðið að hafa lífsgæðin eins mikil og hægt er.

Það er svo frábært að hafa báða karlana mína svona hressa að ég hélt uppá það með að stíflast af kvefi. Það hefur reynst skemmtileg viðbót við "augnstússið" þar sem augun eru þurr og þarfnast mikillar vökvunar á meðan ekkert lát er á vessaframleiðslunni aðeins neðar í andlitinu. Annars eru augun öll að koma til. Kerlingin dreif sig sumsé í leiser í jólafríinu. Eftir að hafa látið mig dreyma um svona aðgerð í ..möörg ár, ákvað ég loksins að þora - enda aðgerð fljót að borga sig upp þegar maður er með tvískipt gleraugu. Ég sé bara skrambi vel en er enn að reyna taka af mér gleraugun á kvöldin og leita leeeengi að þeim þegar ég kem úr sturtu.. Skil núna mun betur söknuð þeirra sem hætta að reykja yfir að það vanti eitthvað í hendurnar. Það sem er minna sniðugt er að þegar ég hjóla með Úlf í leikskólann þoli ég ekki að fá vindinn í augun - enda vön að vera með fína vindvörn á nefinu. Lúkka eflaust mjög vel með tunguna út (þar sem ég get ekki andað með nefinu) og skökk, skæld og vel pírð augu. Spörning um að fara að hjóla með sundgleraugun?

9 athugasemdir:

Ásdís Rósa sagði...

Þetta er absalút tilefni til að splæsa í einhver öfgakúl sólgleraugu. Jájá, það er bara kúl að vera með sólgleraugu á morgnana um vetur. En grínlaust, þá er það eitt af því sem ég dýrka við gleraugnaleysið - að eiga töff sólgleraugu og geta notað þau þegar ég vil! Vona að horið og þurrkurinn lagist fljótt.

Nafnlaus sagði...

Þú ert bara indisleg Harpa mín, dást af seiglu þinni.
Til hamingju að fá sjónina aftur. Nú er tíminn að splæsa á sig cool sólgleraugum til að fá ekki flugu í augað þegar maður er á fleygiferð. Minnir að ég hafi séð frétt um svoleiðis... ;/ En að öðru Gleðilegt nýtt ár og ég vona að þetta ár verði betra en það síðasta hjá okkur.
Knús í hús

kv Guðný

Nafnlaus sagði...

Ég væri mikið til í að sjá mynd af þér á hjólinu !

Siggi

Nafnlaus sagði...

Alltaf svo gott að sá blogg frá þér
Auðvita fær Úlfur rjóma út á skyrið ef hann borðar frekar þannig.Frábært að sjónin sé að lagast. Ástarkv til ykkar og við hefðum verið alsæl að hafa ykkur lengur um jólin mamma

Nafnlaus sagði...

Láttu það eftir þér að fara og kaupa flott sólgleraugu. Þau eru misdökk. Þú getur átt ein frekar ljós til að hafa í myrkri og önnur dekkri þegar fer að birta. Ég held að ég sé búin að splæsa á mig 5 stykkjum síðan ég fór í leiser. Það er bara svo gaman að geta verið með sólgleraugu að það er alveg ótrúlegt.
Gott að heyra að bóndi þinn er svona hress :) Knús í bæinn, Ragnheiður

Nafnlaus sagði...

Gott að allt er í áttina að eðlilegu heimilislífi. Gæti trúað að þið hafið öll verið frekar þreytt eftir jólafríið í ár. Stanslaust prógramm.
Vona að það verði góður fundur á morgun með bæklunarlækninum.
Vona að þú skellir þér eina ferð á hjólinu með sundgleraugu - bara að passa að Guðjón verði tilbúinn með myndavélina.
Knús í kotið - Stína!

Nafnlaus sagði...

Á ég ekki bara að senda þér svona Flugeldagleraugu? Þau hlífa allavega vel, en kanski sést ekki alveg nógu vel í gegnum þau :) Takk annars fyrir síðast. Það var svo dásamlegt að hitta ykkur, og sjá að þið eruð að blómstra þrátt fyrir þrálátar kvefpestir undanfarið. Gangi ykkur allt í haginn á nýju ári elskurnar.
kv. Snærún

Nafnlaus sagði...

Það var yndislegt að hitta ykkur í eigin persónu eftir allt sem á undan er gengið.

Segi eins og fleiri væri gaman sjá þig á hjólinu með umrædd gleraugu.

Gangi honum frænda mínnum sem best á fundinum á morgun og þér að losna við leiðinda kefið.

Knús í bæinn.
Hanna Bára

Nafnlaus sagði...

Það er alltaf gott að koma heim - söknum ykkar samt.
Knús í hús, kysstu kallana. Heyrum af ykkur á morgun.
Sundgleraugu - sólgleraugu - bæði betri!

Ástarkveðja,
tengdó