Kaupmannahöfn hefur verið hvít í rúma viku. Það er reyndar ekki mjög þykkt snjólag og allar götur auðar en stóri bakgarðurinn okkar er hvítur og því snjór í tveggja metra löngu brekkunni hjá leiksvæðinu. Þetta gaf tilefni til að þramma niður í geymslu og sækja forláta snjóþotu sem foreldrarnir gáfu syninum um síðustu jól - og ekki seinna vænna en að fara að nota gripinn. Svo situr töffarinn á þotunni og skipar manni að toga sig aftur á bak og áfram, til hliðar, á ská og allt þar á milli. Og auðvitað hlýða foreldrarnir. Ég er reyndar "soldið" skass þegar eiginmaðurinn stekkur af stað með Úlf á þotunni. Alltaf að passa að HANN ofgeri sér ekki. Þyrfti endilega að læra að hætta þesari afskiptasemi, hún er engum holl. Hafi einhver hér reynslu af að "af-stjórnsamast" má sá hinn sami skila eftir leiðbeiningar í kommentakerfinu.
Annars er einkasonurinn duglegur að halda foreldrum sínum við efnið. Hann er með móður sína á sjálfskipuðu framburðarnámskeiði þessa dagana. Þannig er að hann tók upp á að syngja danskt hip hop lag sem inniheldur hinn flókna texta: "skub, skub til taget" og sumir syngja lon og don. Svo kom auðvitað að því að ég fékk hörmungina á heilann og byrjaði að raula þessa línu. "oh mamma, þú kannt þetta ekki. Maður segir ekki skub heldur skub". Og ég reyni að apa eftir aaalveg eins og hann en nei.. hann er ekki sáttur við árangurinn. Sjálf heyri ég engan mun, svona potato/potata eitthvað og það er alveg sama hvað ég æfi mig. Svo heyrði ég mig tala dönsku á bandi um daginn og það var bara ekki nærri jafn vel heppnaður framburður og sá sem ég heyri þegar ég tala. Klárt að digitalisminn fer illa með danskan framburð. Guðjón er ekki enn farinn að raula með okkur mæðginum en ég held að það sé bara tímaspursmál þar til hann ..fellur. Dönsku-egóið mitt þarf nefnilega á því að halda að fleiri en ég fái orð í eyra sökum slaks framburðar.
Góðar stundir.
4 athugasemdir:
Sé og heyri í ykkur í anda. Þriðja röddin hlýtur að fara að hljóma með ykkur tveim.
kv. Hanna Bára
Ég er alltaf að reyna að taka stjórnsemina í gegn en gengur illa a.m.k. segir pabbi þinn það. Ég hef samt batnað mikið með aldrinum, en auðvita þarf samt að stjórna þeim sem ekki gera það sjálfir svo vel sé
Ég er ánægð með frænda minn að vera farinn að segja foreldrunum til í dönskunni. Þetta veit bara á gott framhald:) Kv Stína
Þetta rifjar nú upp í vor þegar ég var að rembast við að bera fram nafnið á leikskólanum hans og mér fanst bara takast ansi vel - en "nei, þú átt að segja Broloppene" (ekki viss um að ég geti skrifað það rétt heldur!!) Hann er strangur kennari sá stutti he he! kv. Snærún
Sendu inn athugasemd